Jæja þá er komin tími á smá blogg. Verð nú að viðurkenna það að ég er búin að vera mjög löt að blogga enda mikið búið að ganga á hér. Ég er búin að vera í praktik núna undafarinn einn og hálfan mánuð en er hætt núna. Ástæðan fyrir því er að ég var að gera verkefni sem var bara ekki að ganga upp hjá mér að fá það góðkennt. Vejlederinn minn var bara ekki að ná að útskýra þetta nógu vel fyrir mér hún sagði mér hvað ég átti að gera sem og ég gerði, þegar ég skilaði þá átti ég að bæta meira inn í og svona var það í sjö eða átta skipti þannig að ég á sjö eða átta útgáfur af verkefninu mínu. Svo þegar ég var hætt að borða og hætt að sofa þá gafst ég upp, leiðinlegt að viðurkenna það en ég varð að fara að hugsa um mig og Fannar þar sem hann fékk ekki mikla athygli frá mér. En ég er búin að senda inn umsókn á gamla praktik staðinn minn um vinnu og fékk ég bréf í pósti á laugardaginn um að ég ætti að mæta í starfsviðtal á miðvikudaginn, ég átti svo ekki von á því svo ég er hæst ánægð með það.
Mamma, pabbi, Alda og Jónas eru búin að vera hjá okkur í viku og fóru þau heim í gær, það var mikil sorg á flugvellinum þegar við kvöddumst það er alltaf jafn erfitt að kveðja þegar einhver kemur í heimsókn. En það var mjög gaman að hafa þau, ég reyndar var að klára að vinna minn uppsagnafrest svo ég var mikið í vinnunni. Ég náði samt að fá frí á föstudaginn til að vera með þeim og eyddum við deginum í Aarhus og það var náð að versla smá þar eins og í öllum búðum sem farið var í hér í Horsens. Þau komu hingað á laugardagskvöldi og byrjuðum við á því að fara í 35 ára afmæli hjá Sigga. Á sunnudeginum var farið í Djurs sommerland og svo var bara verslað í Horsens. Ég nýtti tækifærið á meðan þau voru hér til að kynna fyrir þeim manninn í lífi mínu og var honum bara vel tekið. Já Sylvía loksins komin í samband var ekki að búast við þessu en svona er þetta bara. Hann er búin að reyna að fá athygli mína síðan ég flutti hingað og tókst það loksins í sumar þegar við urðum góðir vinir náðum að kynnast í rólegheitunum enduðum svo bara saman og er ég bara í sjöunda himni með það.
Svo núna er ég bara að lifa lífinu finna sjálfa mig og njóta þess að vera til
Jæja nóg í bili reyni að vera duglegri að blogga núna Bæ bæ
Ég fór til íslands þann 2 júlí til 21 júlí. Fyrstu helgina var ég að vinna á KFC og ætlaði svo að tala 2-3 vaktir í viðbót en varð að sleppa því að sökum mikillar sinaskeiðabólgu sem ég fékk eftir að hafa verið í of langri pásu frá þessarri vinnu. Svo það var bara farið austur til mömmu og pabba í sveitina og slappað af. Svo bara reynt að hitta alla sem gekk auðvitað ekki því að það er mjög erfitt að vera háður öðrum til að láta keyra sér um allan bæ. En síðustu helgina var djammið tekið með trompi eða eins og okkur frænkum og systrum er lagið. Á föstudeginum fór ég í stelpupartý til Siggu minnar þar var singstar allt kvöldið og enduðum við Helena niðrí bæ með Elísabetu og Öldu sem var bara eitt skemmtilegasta djamm sem ég hef farið á. Svo var brúðkaup hjá Ragnari og Ollu á laugardeginum sem var rosalega flott og var þemað spánn þar sem þau eru að fara að flytja þanngað í næsta mánuði. Þetta kvöld endaði einnig í bænum ásamt systrum mínum og Elísabetu frænku, það var einnig mjög gaman en afleiðingarnar eftir 2 kvöld í röð voru ekki góðar. Svo var fríið búið og ferðinni haldið til Dk í sól og sumar. Það er búið að vera um 30 stiga hiti hér síðan við komum aftur eiginlega alltof heitt af minni hálfu. Við mæðgin erum bara búin að vera að slappa af í sólinni áður en að fjörið byrja þ.e.a.s skólinn. Á föstudaginn eyddum við deginum í lególandi með Örnu vinkonu og fjölskyldunni hennar ásamt annarri fjölskyldu. Og á laugardaginn eyddum við Anna deginum á ströndinni bara næs en afleiðingarnar ekki góðar ÉG ER BRENND Á BAKINU áááá hvað það er vont. Svo í kvöld fórum við heim til Elísabetar að grilla og spila bara smá kósýkvöld rosagaman. Svo kemur Tinna heim á þriðjudaginn og þá ætlum við að skella okkur til þýskalands að versla á grensunni.
Jæja nenni ekki að skrifa meira sjáum svo til hvort að það kemur meira á næstunni.
Núna eru ekki nema 6 dagar í prófið og mér kvíður bara alveg þokkalega mikið fyrir því . Ég er búin að vera að gera verkefni núna í næstum 4 vikur og lesa allt aftur og glósa allt upp á nýtt frá fyrstu önn þar sem ég skildi ekki mikið í dönsku þegar á byrjaði í skólanum. Og guð minn góður hvað þetta makaði eitthvað sens þegar ég las þetta núna.
En þrátt fyrir mikinn próflestur er ég nú líka búin að eiga smá líf við vinkonurnar fórum á Sex and the city myndina þegar hún var frumsýnd hérna þann 6 júní og vá hvað hún var góð. Um síðustu helgi var svo bekkjarpartý hjá bekknum mínum og ákvað ég að skella mér og vá hvað þau voru ánægð með mig að mæta við kíktum svo aðeins í bæjinn og nokkur úr bekknum, þar hittum við Tinnu, Önnu, Hófý frænku og Eddu aupairinn hennar Fanneyjar systir. Símon sem er með mér í bekk hann labbaði strax upp að Önnu því hann hélt að það væri systir mín ekki sá fyrsti sem heldur það, en við skemmtum okkur mjög vel sem var markmiðið.
Í gær fór svo Fannar minn til íslands að hitta pabba sinn og Jónas bróðir( sinn), ég var svo heppin að hann Bjöggi var að fara heim svo hann leiði honum að fara með sér. Svo hann fór í skólann í gær( þar sem hann er ekki búinn fyrr en 27 júní en ég fékk leyfi fyrir hann að fá frí fyrr) og náði ég í hann rétt fyrir klukkan 2 og Ásta og Bjöggi komu að ná í hann hingað um þrjú leytið. Svo var hann kominn á leyðar enda úm ellefu leytið á íslenskum tíma.
Við Tinna ákváðum svo á síðustu stundu að fara í bíó í gærkveldi með fullt af fólki á íslenska bíómynd Stóra planið og vá hvað hún var leiðinleg en það var samt fínt að fá smá pásu frá lærdómnum. Svo var hún Elísabet mín að klára prófið sitt í gær og hún er orðin HJÚKRUNARKONA, til hamingju með það skvísa.
En jæja það er búið að vera mjög gaman hjá okkur Tinnu hér í danmörku, það fer mjög vel um okkur hér og sambúðin gengur vel. Fannar hefur leyft henni að fá herbergið sitt til að sofa í en hann er enn með dótið sitt þar inn og við færðum rúmið hans inn til mín. Hann var bara mjög sáttur með það því honum þykir rosagott að vera hjá mömmu sinni.
Nú er alvaran byrjuð hjá mér í skólanum hélt að ég myndi deyja úr stressi í gær þegar við vorum í prófkynningunni. Semsagt við erum að byrja að vinna í verkefni núna næstu 4 vikurnar sem við kynnum svo og þurfum að verja verkefnið. Og guð minn góður hvað mér kvíður fyrir þessu öllu saman. En í þegar við vorum í kynningunni í gær var hún Tinna mín á leiðinni í skólann sinn og villtis á leiðinni þannig að þá fékk ég panic númer 2, svo kom 3 panicið við áttum að vera í skólanum til kl 12 og koma aftur kl 14 en nei við áttum að vera til kl 16. Málið er að það er verkfall hjá pædagogunum í Horsen og ég átti að ná í Fannar kl 13:40 svo ég byrjaði að hringja út um allt til að redda drengnum sem tókst á endanum en þegar kl var korter yfir eitt kom í ljós að skólinn var búinn og ég þurfti ekkert að fá þetta panic númer 3. Þrátt fyrir öll panicin fékk ég nú góðar fréttir líka, við skiluðum inn óskalista yfir praktik staði í síðustu viku og fengum við að vita í gær hvert við eigum að fara og ég fékk það sem ég setti í 2 sæti semsagt ég er að fara að vinna á vuggestue/vöggustofu í Hedensted mig hlakkar mikið til þess.
Þannig að næstu vikurnar verður ekki mikið blogg þar sem ég verð á fulla að vinna í prófverkefninu. svo bless í bili
Jæja þá er sumarið komið og það er eiginlega allr of heitt, það er búið að vera yfir 20 stiga hiti alla vikuna.
Það er nú búið að vera mjög tómlegt hjá mér síðan að allir fóru heim, Tinna framlengdi sína ferð um viku og fór heim síðasta þriðjudag en kemur svo aftur næsta þriðjudag. Hún ætlar að skella sér í ljósmyndaskólann í Viborg og ætlar að búa hjá okkur Fannsa það verður nú gaman að hafa hana hjá mér.
Það er ekki búið að vera mikill skóli hjá mér undafarið og hef ég bara verið að hanga heima og gera ekki neitt. En í dag fór ég með henni Línu frænku í Hensted skov og taka myndir fyrir verkefni sem ég er að gera í skólanum, hún á svo flottar græjur að ég bað hana um að hjálpa mér. Við semsagt lögðum af stað kl hálf níu í morgun og um kl ellefu viðurkendum við loksins að við værum viltar eiginlega bara svodið mikið. Á endanum hittum við konu og var hún með kort af skóginum og hún gaf okkur kortið til að geta ratað heim og svipurinn á konunni þegar við sögðum henni hvaðan við komum. Loksins fundum við leiðina til baka og vorum komnar heim rúmlega tólf en við náðum mörgum flottum myndum og við sáum íkorna og dádýr í skóginum. Þar til næst bless bless.
Jæja þá er komið að nýrri færslu, þó fyrr hefði verið
Tölvan var biluð í rúma viku, Jens reyndi að hjálpa mér að laga hana en það gekk ekki hjá honum, þá sendi ég Ragnari frænda mail og hann loggaði sig inn á tölvuna mína og fann eitthvað út úr þessu en ég þurfti að taka allt sem ég átti inn í tölvunni myndir og fleirra. Svo komu Siggi og Lína í heimsókn á mánudaginn í síðustu viku og Siggi bauðst til að taka tölvuna með sér heim og hann náði að laga hana, takk fyrir það.
En það er búið að vera mikið að gera hjá okkur hér í danmörku, við á fullu í skólanum og auiðvitað mikið að gera í skemmtanalífinu hjá mér. Það er hægt að lesa um það á blogginu hjá Önnu( www.annasigga.bloggar.is )
Síðasta mánudag komu Tinna og Alda systur mínar til mín ohhh það var svo gaman að fá þær til mín. Mamma, Jónas og Líney komu svo á þriðjudaginn og fórum við Elísabet í smá road trip til Köben því það var svo mikið vesen á lestarkefinu ekkert nema skipti lestar svo við náðum í prinsessurnar. Þannig að öll vikan er semsagt búin að vera verslunar vika búið að fara til Århus, vejle og auðvitað göngugötuna hér í Horsens. Í dag var svo fermingin hjá Fúsa sem heppnaðist mjög vel. Á morgun er svo verslunar ferð til Århus og verður vaknað snemma til að vera komin í fyrra lagi og hægt sé að gera meira úr deginum.
Jæja nenni ekki að skrifa meira núna ætla að sinna gestunum mínum.
Jæja það gengur rosavel í skólanum við vorum að byrja í valfaginu á þriðjudaginn og var þá farið í skóginn frá kl 9 - 13 ekkert smá gaman, fyrir utan að við vorum að skoða pöddur og leyta af froskum sem var reyndar í lagi en pöddurnar eru ekki vinir mínir. Á morgun er svo tími í myndlist ohh það verður gaman. Fannari gengur rosavel í skólanum sínum og segir núna á hverjum degi mamma mig hlakkar til að fara í skólann á morgun sem er smá gaman að heyra því hann var svo leiður í hinum skólanum. Svo var ég að skrá hann í sund og ég bíð bara eftir að fá svar frá þeim, hugsa að hann hafi bara gaman af enda alger sundgarpur eftir að hafa búið í Hraunborgum heillt sumar og var þá farið í sund 4-5 sinnum á dag. Helgin var bara mjög skemmtileg á föstudaginn kíktum við aðeins á skólabarinn og á laugardaginn fór ég út að borða með Örnu og vinkonu hennar, eftir matinn kíktum við aðeins hingað heim en ekki lengi því við kíktum heim til Elísbetar í singstar og svo var djammað framm að morgun, ekkert smá skemmtilegt djamm.
Lilja systir lét skíra lilla á laugardaginn og fékk hann nafnið Tristan Máni. Hefði nú alveg verið til í að eyða þeim degi með þeim en svona er að vera í öðru landi svo maður missir af ýmsu sem maður hefði viljað vera með í. En allavega til hamingju með nafnið elsku Tristan Máni og auðvitað Lilja og Vikki til hamingju með fallega nafnið að fallega drengnum ykkar.
En það er ekki langt í að Tinna og Alda komi til mín ekki nema 11 dagar eða svo ohh get ekki beðið. Svo koma mamma, Jónas og Líney nokkrum dögum seinna get ekki beðið eftir því heldur, daginn eftir að þau koma þá koma ammma, afi, Alda Ragna og Þorvaldur Axel svo það verður gaman að hitta alla og gera eitthvað saman.
Á morgun er svo saumó hjá Önnu og svo afmæli á laugardaginn hjá Hörpu. Fannar fer reyndar líka í afmæli hjá bekkjarbróður sínum á laugardaginn og hjá öðrum bekkjarbróður sínum á sunnudaginn svo það verður mikið að gera í afmælum þessa helgina.
Jæja þá er sumartíminn byrjaður og ég vaknaði í morgun við að Elísabet hringdi í mig því við vorum búnar að tala um að fara í ljós áður en hún færi í ræktina. Ég fór svo fram og kveikti á tölvunni og sá að klukkan var tólf og við héldum báðar að hún væri ekki nema ellefu ég hringdi stax í Elísabetu og sagði henni fréttirnar, sú var ekki glöð að hafa misst af tímanum í ræktinni en þakkaði mér nú samt fyrir því annars hefði hún gert sig að fífli að mæta klukkutíma of seint í tímann. Við vorum nú samt hér heima hjá mér í gær, því ég bauð öllu liðinnu í pizzu, og við vorum að tala um að tíminn myndi breytast að miðnætti en það var gersamlega stolið úr okkur frænkum þegar við vöknuðum og þar af auki gleymdum við að stilla klukkuna áður en við fórum að sofa.
En út í annað eftir að ég var búinn að skrifa síðustu færslu kom elskulegi sonur minn til mín og sagði: "Mamma kennarinn sagði að allir foreldrar ættu að kemba hárið á börnunum sínum" og auðvitað gerði ég það og guð minn góður hann var með lús þvílíkur viðbjóður, þannig að ég fór strax upp í apótek að ná mér í allar græjur til að losna við þennan viðbjóð. Svo að það er búið að vera mikið að gera í þvotti hjá mér þarf að taka af rúminu hans á hverjum einasta degi og sjóða það, fötin hans fara inn í frysti eftir hverja notkun í nokkra klukkutíma og kemba hausinn á honum kvölds og morgna. Svo kom hún Sigrún til mín á fimmtudaginn og kemdi hárið á mér og sem betur fer var ekki neitt í mér en samt sem áður er ég búin að klóra mér svo mikið í hausnum að hársvörðurinn á mér er aumur. Svo var ég að kemba hann í morgun og það kom ekki neitt enginn nit eða lús sem betur fer en ég held áfram að kemba fram á miðvikudag og set aftur efnið í hárið á honum svo að það sé alveg öruggt að allt sé farið.
Ég fór aðeins í heimsókn á leikskólann sem ég var í praktik á föstudaginn og voru börnin ekkert smá glöð að sjá mig. Einn strákur sem er algjör gaur kom til mín og tók utan um mig og sagði " Sylvía ég er búinn að sakna þín" ohh það var svo sætt. En ég gat ekki verið lengi hjá þeim því ég var að fara að hitta Elísabet og Önnu niðri í bæ svo ég sagði að ég kæmi aftur á miðvikudaginn því ég er í fríi í skólanum. Louise sem var vejlederinn minn spurði hvenær ég kæmi og ég sagði að ég kæmi upp úr átta eða bara strax eftir að ég væri búin að fara með Fannar í skólann og mér hlakkar bara til að fá að vera aðeins með börnunum þau eru svo æðisleg. Svo er ég að spá í að spyrja hvort að ég gæti fengið vinnu hjá þeim í júlí þar sem að gengið lækkar og lækkar verður maður nú að fá einhvern auka pening.
Jæja þá er ég komin aftur til Dk. Það var mjög gaman að koma til íslands í smá tíma en það er líka gaman að koma aftur heim.
Við komum til íslands á fimmtudagskvöldi og Benni kom að ná í okkur, þegar við komum heim til mömmu og pabba þá biðu eftir okkur móttökulið. Tinna og Lilja biðu eftir okkur svo við gætum nú fengið að sjá litla karla strax og hann er svo sætur. Benni var að vinna á föstudaginn svo að Fannar var hjá mér fyrstu nóttina svo fór hann til pabba síns og Jónas bróðir fékk að vera 3 nætur hjá þeim. Þeir fóru í bíó, sund og margt fleira skemmtilegt. Ég var meira og minna bara með fjölskyldunni minni það var farið á Laugaveginn, smáralindina og kringluna svo auðvitað í heimsókn til ömmu og afa og ömmu. Það var haldið afmæli fyrir Jónas og svo fór ég í afmæli til Gabríels Arnars hennar Arndísar og svo í afmæli til Hjörleifs Smára frænda, svolítið af afmælum þannig að það var borðað mikið af veislumat. Ég hitti Siggu og Helenu tvisvar sinnum eitt rólegt kvöld bara að kjafta saman og svo var spilakvöld hjá Siggu og Árna og var spilað langt framm eftir morgni. Kíkti aðeins á árshátiðina hjá KFC mikið fjör þar en við stoppuðum nú ekki lengi en engu að síður skemmtilegt. Svo var ferðinni haldið aftur til Dk, Anna kom að sækja okkur til Köben svo var bara brunað af stað til Jótlands. Anna keyrði þar til að við vorum komin yfir stóra beltið og þá tók ég við því Anna var svo þreytt. Við vorum komin til Horsens um miðnætti ég var ekkert að keyra of hratt því að það byrjaði að snjóa þegar við vorum komin að fjóni og eftir það var snjór á veginum alveg heim og mikill sjór inn í bænum.
Núna er skólinn byrjaður aftur og alvaran tekin við byrjaði á því að fara með verkefni í morgun sem gekk vonum framar og ég fékk ekkert nema hrós frá bekknum, það er svo gaman að fá þannig undir tektir. Svo er annað verkefni á föstudaginn en ég er ekki alveg búin að ná því sem við eigum að gera en við byrjum að vinna í því á morgun.
Jæja Anna fer að koma úr skólanum við ætlum að skella okkur í Bilka. Þar til næst bæ bæ.
Jæja þá er mikið ferðalag framm undan 3 tíma lesta ferð, 2 tíma bið á flugvellinum og svo 3 tíma flug. Ég er búin að pakka, baka pizzasnúða fyrir lestarferðina og ætla svo að baka pizzu líka í kvöld það er svo dýr maturinn í lestinni að það er langbest að fara bara með nesti með sér. Svo fór ég í h&m og kaupa afmælisgjöf handa Jónasi bróðir hann er 8 ára á morgun og Fanney systir á líka afmæli á morgun (við segjum ekkert hve gömul hún verður).
Fannar talar ekki um annað en að hann sé að fara til íslands enda skiljanlegt hann saknar pabba síns og besta vinar síns eða eigum við að segja bróður síns. Við förum bæði í skólann á morgun til kl 14 og svo förum við í lestina kl 15:30 getum ekki beðið en samt ekki að fara í lestina en það fylgir bara þegar maður býr á jótlandi. Við Lilja ætlum svo í leikhús á laugardagskvöldið við ætlum að sjá Jesus Christ Superstar, ég er búin að heyra að það sé alveg geggað gaman, mig hlakkar ekkert smá til að hitta Lilju. Svo fæ ég loksins að sjá litla guttann hennar maður er bara búin að sjá hann á myndum í 2 mánuði og það er bara ekki nóg.